Ertu búin að panta jólamyndatökuna ?
Við eigum enn nokkra tíma lausa í litla jólamyndatöku.
Hægt er að bóka jólatilboðið á eftirfarandi dögum, 1., 8. og 15.- nóvember.
Fimm myndir fullunnar og tilbúnar til prentunar. 17.000.-
Veljið tíma hér fyrir neðan og vinsamlegast staðfestið tíman með greiðslu.
Við bjóðum upp á tvær mismunandi stellingar, einfaldar, stílhreinar og fallegar.
Farið er yfir ykkar óskir fyrir myndatöku og reynt að mæta þeim eftir bestu getu.
Myndatakan tekur einungis stutta stund og engin fataskipti.
Tilboðið gildir einungis fyrir barnamyndatöku, ekki fjölskyldumynd.
Myndatakan miðast við þrjú börn, ef um fleiri börn eru að ræða þá greiðist 6.000.- kr aukagjald.
Hægt að panta hér fyrir neðan.
Limited new born sessions / Ungabarnamyndatökur 2015
Nokkrir lausir tímar í ungabarnamyndatöku árið 2015
May – fullt
Júní – 2 myndatökur
Júlý – 2 myndatökur
Águst – 1 myndataka
September – 2 myndatökur
Oktober – 3 myndatökur
Nóvember – 2 myndatökur
Desember 4 myndatökur
Best er að panta myndatökuna í kringum áætlaðan fæðingardag. Til að tryggja tímann þinn skaltu hafa samband þegar þú veist áætlaðan fæðingardag, þú hefur svo strax samband og barnið er fætt og við finnum tíma handa þér þegar barnið er í kringum viku gamalt. Þegar þú greiðir staðfestingargjaldið ertu búin að tryggja þér tíma í myndatökuna.
Limited new born sessions.
Best is to order your session around the expected delivery date. To ensure your time , please contact when you know the approximate date of birth , and then the child is born and we find time for you, when your child is around five days to week old . When you pay the deposit fee you secure your session.
Fermingarmyndatakan
Fermingarmyndatökur er eitt af því skemmtilegra sem ég geri. Lifandi og skemmtileg börn, sem hafa sterkar skoðanir á því hvernig þetta á allt að líta út eru best. Hér er ein slík sem valdi sér allskonar mismunandi grunna til að setja bakvið hvíta grunninn sem er í studíóinu. Ótrúlega gaman að gera nýtt og leyfa þeim að ráða.
Gott að vita fyrir ungbarnamyndatöku
Best er að panta myndatökuna í kringum áætlaðan fæðingardag. Til að tryggja tímann þinn skaltu hafa samband þegar þú veist áætlaðan fæðingardag, þú hefur svo strax samband og barnið er fætt og við finnum tíma handa þér þegar barnið er í kringum viku gamalt. Þegar þú greiðir staðfestingargjaldið ertu búin að tryggja þér tíma í myndatökuna.
Best er að koma áður en barnið verður tveggja vikna, en ástæða þess er að þá sefur það mjög vært og mun auðveldara að meðhöndla þau í myndatöku en þegar þau eru orðin eldri.
Ljósmyndarinn getur einnig komið heim til þín og myndað barnið þar ef það hentar betur.
Það er samt aldrei er of seint að koma með ungabarn í myndatöku.
Myndatakan.
Myndatakan sjálf getur tekið allt að fjóra tíma.
Ef myndatakan gengur ekki eins og við viljum, þá færðu nýjan tíma og við reynum aftur.
Í barnamyndatöku er gott að velja hentug föt sem koma vel út í myndatökunni. Við aðstoðum og gefum ráðleggingar hvað það varðar.
Komdu í heimsókn, hringdu eða sendu tölvupóst og við förum yfir það saman hvernig myndir og bakgrunn þú vilt fá og vinnum út frá því.
Við eigum til í stúdióinu alls konar hlutir, svo sem bangsar, vagnar, körfur, teppi, hárskraut og fleira sem hægt er að nýta í myndatökunni.
Við getum einnig ráðlagt þér hvers konar teppi og hluti er best að koma með, því það er alltaf persónulegra að vera með sinn bangsa og eða teppið sem amma prjónaði.
Barnið sjálft er að sjálfsögðu mesta skrautið, ekki gleyma því og einfaldleikinn of bestur.
Ungabarnamyndataka er líka dásamleg gjöf að gefa.
Eigum fallegar gjafaöskjur með gjafakorti.
Ungabarnamyndataka / New born photography
Hvað er yndislegra en ungabarnamyndir.
Þessi tími líður svo hratt og yndislegt að eiga fallegar myndir.
Yndislegt að gefa myndatöku í fæðingar eða skírnargjöf. Er með falleg gjafakort í boxi.
Meðgöngu -ungbarna –barnamyndataka / New born photography
5 Myndir í fullri upplausn 25.000.- í albúmi eða bók 40.000.-
10 Myndir í fullri upplausn 35.000.- í albúmi eða bók 50.000.-
15 Myndir í fullri upplausn 40.000.- í albúmi eða bók 55.000.-
20 Myndir í fullri upplausn 45.000.- í albúmi eða bók 60.000.-
25 Myndir í fullri upplausn 50.000.- í albúmi eða bók 65.000.-
Ath fyrir þá sem vilja koma aftur og fá fleiri myndir á sama ári.
Þá færðu eina seríu í fullri upplausn (sama uppstilling) kostar það 9000.-
Gott að hafa í huga fyrir fermingar myndatökuna
Til að hægt sé að hafa myndirnar til sýnis í fermingarveislunni þarf að koma þremur vikum fyrir fermingardaginn.
Gott er að hafa með nokkur sett af aukafötum, Sparifötin, hversdagsfötin, íþóttafötin og allt sem því fylgir. Einig er sniðugt að taka hljóðfærið, gæludýrið, eða jafnvel besta vininn/vinkonu með í myndatökuna.
Fermingarbörn eru best í að velja sjálf hvað þau vilja hafa með sér. Þetta er jú þeirra dagur og við viljum fá gleðiglampann í augum þeirra, þá er ljósmyndarinn og allir sáttir.
Fermingarmyndataka tekur rúmlega 1– 2 klst fer eftir fjölda mynda og ljósmyndarinn hættir ekki fyrr en hann er sáttur með árangurinn.
Ef taka á fjölskyldumyndir og systkinamyndir þá er gaman að hafa alla í stíl tildæmis í ljósum eða dökkum litum. Eins hafa lopapeysur komið mjög skemmtilega út.
Fallegar snjómyndir eru ekki síðri en sumarmyndir.
Hægt er að blanda myndatökunni og mynda bæði úti og inni í stúdíói.
Ef fjölskyldan kemur með í myndatökuna er best að þau komi öll í upphafi myndatökunar og fari aftur stax, er fjölskyldumynd og systkin hafa verið mynduð, því athyglin á jú að snúast um fermingarbarnið. Oft er mikil truflun að hafa of marga í kringum sig.
Með kærri kveðju Krissy ljósmyndari
Fermingar tilboð í febrúar
10 aukamyndir fylgja með þegar þú pantar 15 mynda fermingarmyndatöku. Allar nánari uppl. sendið póst á krissy@krissy.is eða pantið í gegnum vefsíðuna krissy.is
Fermingarmyndataka
Fermingar myndatökur eru í oftast teknar í febrúar, mars og apríl. En svo ótrúlega fallegt að mynda er vorið og sumarið er komið. Mjög gaman og fallegt að mynda úti.